Völlur er að verða grænni og grænni með hverjum degi og er honum hrósað vel þessa dagana af kylfingum sem koma við hjá okkur í skálanum.
Strákarnir gera allt sem þeir geta til að gera okkar upplifun sem besta. Mynnum svo á að vera dugleg að laga boltaför.
Barna og unglingaæfingar fara vel af stað og er búin að vera góð mæting á þær.
Nýliðaæfingar hefjast í þessari viku og hvetjum við alla nýliða að koma í hóp á Facebook sem heitir “Nýliðar GHG 2022” og er það opinn hópur. Æfingar verða í júní og júlí og fer skráning fram í þessa tíma í FB hóp.
Fyrsta nýliðaæfing er nk. fimmtudag kl 19:00 2. júní.
Bjóðum alla nýliða velkomna og þeir sem voru nýliðar á síðasta ári velkomin að koma og vera með í ár.
Skráning er hafin í meistaramót.
Fyrirtækjahópar eru byrjaðir að koma í heimsókn og vil ég minna félagsmenn á að sýna því tillitsemi ef eitthvað dregst á langinn eða rástímar eru ekki alveg á skráðum tímum þar í kring.
Njótið sumarsins.
Kveðja frá GHG