Ljósaboltamót fyrir félagsmenn

Verður haldið 27. september kl 17:40
Verð 2.000 kr
 
Innifalið er súpa og einn ljósabolti.
 
Þetta er til gamans gert og um að gera að hafa höfuðljós meðferðis og jafnvel litríka batterís seríu til að skreyta pokann með. Svo er mjög gaman að hvert holl sé með tónlist svo dalurinn ómi af gleði og ljósum. Leikfyrirkomulag er að koma boltanum sem næst holu á sem fæstum höggum, teigar fara eftir birtu skilyrði. Félagsmönnum er velkomið að taka með sér gest. Um að gera að hafa bara gaman og hlægja saman. Ef veður verður ekki ákjósanlegt, frestum við mótinu. Vonandi getum við ræst út af sem flestum teigum. Skráning er í golfboxinu.
 

Leave a Reply