Fannar Ingi mætti í golfskálann í kvöld og tók við viðurkenningu frá Einari Lyng rekstrarstjóra og golfkennara fyrir hönd golfklúbbsins.
Viljum við í GHG óska Fannari Inga innilega til hamingju með árangurinn í Egils Gullmótinu á Eimskipsmótaröðinni sem haldið var á Hólmsvelli í Leiru. Og eins og hann segir sjálfur að þá er ísinn brotinn.
Óskum við honum góðs gengis í framtíðinni.
F.H. GHG
Einar Lyng