Reglugerð um þátttöku keppnisliða GHG í
Sveitakeppni GSÍ í karla- og kvennaflokkum.
- Stjórn GHG velur liðstjóra keppnisliðs GHG á sveitakeppni GSÍ karla og kvenna, stjórnin skal tilkynna val sitt eigi síðar en 1. maí ár hvert.
- Fjöldi kylfinga skal vera í samræmi við ákvörðun GSÍ.
- Einungis kylfingar sem eru skráðir í GHG sem aðalklúbb og greitt hafa félagsgjöld að fullu, geta öðlast rétt til að vera í keppnisliðinu. Einnig skulu kylfingar hafa gilda forgjöf samkvæmt reglum GSÍ
- Þeir 3 kylfingar sem eru efstir á meistaramóti GHG öðlast sjálfkrafa rétt til að vera í keppnisliðinu. Ef einhver af þessum 3 getur ekki tekið þátt, fjölgar í vali liðsstjóra
- Liðstjóri velur þá kylfinga sem vantar til að hafa fullt lið til keppni í sveitakeppni GSÍ.
- GHG greiðir þátttökugjöld og sér keppnisliðum fyrir mat á keppnisdögum.
- GHG sér keppnisliðum fyrir klúbbfatnaði (bol og/eða peysur) eftir þörfum.
- GHG veitir keppnisliðum afnot að Gufudalsvelli til að halda styrktarmót. Ágóði af styrktarmótum skal notaður til að standa undir öðrum kostnaði svo sem ferða-, gisti-, golfkúlu- og fatakostnaði öðrum en í lið 7.