Boðað er til aðalfundar Golfklúbbs Hveragerðis þriðjudaginn 12. desember 2023. Fundurinn hefst kl. 20:00 og verður haldinn í golfskálanum.
Dagskrá aðalfundar:
- Skipan fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar um starfsárið 2023
- Ársreikningur 2023
- Félagsgjöld 2024
- Fjárhagsáætlun 2024
- Lagabreytingar
- Kosningar
- Kosning þriggja stjórnarmanna til tveggja ára
- Kosning þriggja varamanna í stjórn til eins árs
- Kosning tveggja skoðunarmanna til eins árs og eins til vara
- Viðurkenningar til félagsmanna
- Önnur mál
Þeir sem hafa áhuga að gefa kost á sér í nefndir eða stjórn GHG eru vinsamlega beðnir um að senda póst á ghg@ghg.is
Ársreikningur 2023 er aðgengilegur hér.
Stjórn GHG