Fréttir af sumarstarfi

Kæri félagi 

Því miður er veðrið ekki alveg að spila með okkur golfurunum, en það er þó eitthvað verið að spila völlinn þessa dagana.

Samningur hefur verið gerður við golfklúbbinn Odd um að þeir getir spilað hjá okkur á virkum dögum í sumar. Ekki er um gagnkvæman samning að ræða.

Einnig hefur verið gerður nýr samningur við Golfklúbb Borgarnes og þar er 50% afsláttur gegn framvísun pokamerkis sé þess óskað. Pokamerkin koma í vikulok og er hægt að vitja þeirra á opnunartíma skálans.

Æfingar

Við hefjum æfingar fyrir krakkana þann 28. maí næstkomandi og eru allir krakkar hvattir til að koma og vera með. Æfingar verða í sumar á mánudögum og fimmtudögum klukkan 18:00.

Nýliðaæfingarnar hefjast 5. júní. Nánar auglýst síðar.

Vinnudagur 

Áætlað er að hafa vinnudag í byrjun Júní og hvetjum við sem flesta að koma og hjálpa til við að gera fínt hjá okkur. Nánar um það síðar.

Mót 

Miðvikudagsmótaröðin hefst á miðvikudag og er það KFC/Skalli sem styrkir eins og í fyrra. Allar upplýsingar um mótin eru á golf.is. Hvetjum alla til að taka þátt og vera með í þessum mótum í sumar.

Fyrsta mót sumarsins er áskorendamót unglinga og verður það næsta laugardag.

Fyrsta innanfélagsmótið verður svo 2. júní Flóra Garðyrkjustöð. Hvetjum alla til að koma og vera með.

Kveðja GHG

Leave a Reply