Sælir kæru klúbbfélagar í Golfklúbbi Hveragerðis
Á aðalfundi GHG 2016 voru samþykkt árgjöld fyrir árið 2017. Árgjöld
hækka um 3% frá fyrra ári, en lækka verulega fyrir aldurshópinn 19-29
ára. Nú er komið að innheimtu árgjaldsins, en árgjöld 2017 eru
eftirfarandi:
Aldur | Verð | |
Árgjald | 30-66 ára | 62.800 kr. |
Árgjald | 67+ | 36.100 kr. |
Hjónagjald | 98.900 kr. | |
Öryrkjar | 36.100 kr. | |
Árgjald | 19 – 29 ára | 36.100 kr. |
Unglingar | 16 – 18 ára | 18.500 kr. |
Unglingar | 13 – 15 ára | 7.200 kr. |
12 ára og yngri | Frítt | |
Aukaaðild | Aðalklúbbur annar | 44.300 kr. |
Nýliðar (34+ í forgjöf við skráningu) fá 50% afslátt af árgjaldi á
fyrsta ári.
Aldursmörk miða við hvaða aldri félagsmaður nær á árinu 2017.
Boðið er uppá eftirfarandi leiðir til að gera skil á árgjaldinu:
1. Greiðsla með einni greiðslu án alls kostnaðar með bankamillifærslu í
síðasta lagi föstudaginn 12. febrúar 2017 inn á bankareikning GHG:
Bankareikningur 314-26-925
Kennitala GHG 570893-2389
Mikilvægt er að kennitala félaga komi fram í tilvísun.
Staðfesting fyrir greiðslu verði send í tölvupósti til ghg@ghg.is
2. Greiðslu skipt á þrjá greiðsluseðla sem birtist líka í heimabanka.
Gjalddagar 1. febrúar, 1. mars og 1. apríl og eindagar 15. dag sama
mánaðar.
Kostnaður vegna greiðsluseðla greiðist af greiðanda.
3. Greiðsla með einni greiðslu með greiðsluseðli sem birtist líka í
heimabanka.
Gjalddagi 15. febrúar og eindagi 2. mars.
Kostnaður vegna greiðsluseðils greiðist af greiðanda.
Þeir sem vilja nýta sér leið 1 þurfa að greiða fyrir 12. febrúar 2017.
Þeir sem vilja nýta sér leið 2 verða að tilkynna það með tölvupósti til
ghg@ghg.is í síðasta lagi 1. febrúar 2017.
Þeir sem ekki greiða skv. leið 1 og hafa ekki samband fá greiðsluseðil
skv. leið 3.
Félagar fá reikning fyrir árgjaldinu þegar það hefur verið greitt.
Ef engin ofangreind leið hentar verði það tilkynnt með tölvupósti til
ghg@ghg.is eða haft samband við formann eða gjardkera GHG.
Félagsmönnum er bent á að kynna sér hvort þeir eigi rétt á styrk frá
stéttarfélagi og/eða vinnuveitenda vegna árgjaldsins.
Stjórn GHG