Spilað verður í 2 riðlum í Holukeppni 2016.
Leikskipulag verður með þeim hætti að allir spila við alla í hvorum riðli og sigurvegarar hvors riðils spila til úrslita.
Þeir sem lenda í öðru sæti spila um þriðja til fjórða sæti.
Sigur í hvorum leik gefur 2 stig og jafntefli gefur 1 stig.
Í úrslitum og leik um 3ja sæti er spilað 3ja holu umspil.
Menn koma sér saman um leikdaga í riðlunum og þarf þeim að vera lokið eigi síðar en 23. Júní.
Úrslitaleikirnir verða spilaðir 28. Júní.
Dregið hefur verið í tvo riðla:
- Riðil skipa eftirtaldir leikmenn:
Auðunn Sigurðsson, Ólafur Þorkelsson, Guðmundur Erlingsson
og Guðjón H. Auðunsson
- Riðil skipa eftirtaldir leikmenn:
Erlingur Arthúrsson, Auðunn Guðjónsson, Sigmundur Guðnason og Össur Friðgeirsson
Spilað er eftir 7/8 forgjöf.
Ef að menn verða jafnir eftir 18 holur, verður umspil 3 holur (1/3 forgjöf)
(1.-3. braut). Verði enn jafnt verða spilaðar 3 holur, þangað til úrslit fást.
26 í mun á forgjöf þýðir 23 högg
25 = 22 högg
24 = 21 högg
23 = 20 högg
22 = 19 högg
21 = 18 högg
20 = 18 högg.
19 = 17 högg.
18 = 16 högg.
17 = 15 högg.
16 = 14 högg.
15 = 13 högg.
14 = 12 högg.
13 = 11 högg.
12 = 11 högg.
11 = 10 högg.
10 = 9 högg.
9 = 8 högg.
8 = 7 högg
7 = 6 högg.
6 = 5. högg.
5= 4 högg.
4 = 4 högg.
3 = 3 högg.
2 = 2 högg.
Ef að það eru einhverjar spurningar hafið þá samband við Hjört Árnason formann mótanefndar í síma 892 1884.