Meistaramótið fer fram dagana 6. til 9. júlí.
A.T.H Kylfingar þurfa að skrá sig á rástímablað í golfskála fyrir miðvikudag og fimmtudag!
Leikdagar:
6.júlí Miðvikudagur- Rástímar frá kl. 15 Allir flokkar
7.júlí Fimmtudagur-Rástímar frá kl. 15 Allir flokkar
8.júlí Föstudagur- Rástímar eftir uppröðun frá kl. 15 Karlaflokkar-Kvennaflokkar
9.júlí Laugardagur- Rástímar eftir uppröðun frá kl. 9 Allir flokkar
Verðlauna afhending verður að móti loknu 9. júlí.
Skráningu líkur 2. júlí kl 19:00
Allir klúbbfélagar eru hvattir til að taka þátt.
Reglugerð um meistaramót GHG
- Meistaramót GHG skal haldið í júlí ár hvert.
- Þátttökurétt hafa allir fullgildir félagar klúbbsins.
Einungis klúbbfélagar með GHG sem aðalklúbb geta orðið klúbbmeistarar.
- Keppt skal í karla, kvenna, unglinga- og öldungaflokki.
- Leikmönnum er raðað í flokka eftir forgjöf, fyrsta leikdag mótsins.
Keppni hefst á miðvikudegi og stendur yfir í fjóra daga, allir flokkar ljúka l leik á laugardegi, lokadegi mótsins.
Mótsstjórn raðar niður leikdögum hjá þeim flokkum sem spila þrjá daga.
Fyrstu tvo mótsdagana skrá þátttakendur sig á rástíma í skála, en 3. og 4. dag mótsins verður ræst út eftir flokkum og skori fyrri keppnisdagana.
- Leikinn skal höggleikur án forgjafar í eftirtöldum flokkum:
- Karla flokkar, teigar 54, 72 holur, (4×18 holur).
- Meistaraflokkur, forgjöf 0 til 9,0.
- 1.flokkur karla, forgjöf 9,1-15,0.
iii. 2.flokkur karla, forgjöf 15,1-24,0.
- 3.flokkur karla, forgjöf 24,1-36,0.
- Kvenna flokkar, teigar 45, 72 holur, (4×18 holur).
- Meistaraflokkur kvenna, forgjöf 0-28,0.
- 1.flokkur kvenna, forgjöf 28,1-36,0.
- Öldungaflokkar:
- Karlar 50-69 ára, teigar 50, 72 holur; (4×18 holur).
- Karlar 70 ára og eldri, teigar 45, 54 holur; (3×18 holur).
iii. Kvenna 50-69 ára, teigar 45, 54 holur; (3×18 holur).
iiii. Kvenna 70 ára og eldri, teigar 45, 54 holur; (3×18 holur).
- Unglinga- og barnaflokkar:
- Strákar 16-18 ára, teigar 54, 72 holur (4×18 holur).
- Stelpur 16-18 ára, teigar 45, 54 holur (3×18 holur).
iii. Strákar 13-15 ára, teigar 45, 54 holur (3×18 holur).
- Stelpur 13-15 ára, teigar 45, 54 holur (3×18 holur).
- Barnaflokkur 12 ára og yngri, teigar 45, 27 holur ( 3x9holur). ? ( Tilbúinn teigur )
Heimilt er að fella niður þátttöku í einstökum flokkum eða breyta flokkaskipan ef ekki er keppnisfært í flokkunum (þátttakendur eru færri en 3).
6. Óvæntar uppákomur:
a.Ef hætta þarf leik vegna óviðráðanlegra orsaka, skulu skor í öllum flokkum viðkomandi dag teljast ógild.
b.Ef ekki nást úrslit eftir lögbundinn holufjölda, skal leika þriggja holu umspil og ef ekki nást fram úrslit í umspili þá skal leika bráðabana.
i. Í umspili skal leika holur 4, 8 og 9.
ii.Í bráðabana skal leika holu 9 þangað til sigurvegari fæst.
- Klúbbmeistarar GHG í karla- og kvennaflokki eru þeir kylfingar sem leika 72 holur á fæstum höggum.
Sigurvegari í hverjum flokki verður flokkameistari.
- Skráningu skal vera lokið kl. 19:00 tveimur dögum fyrir fyrsta keppnisdag.