Miðvikudagsmótaröðin

Nú er sumarið farið að rúlla af stað og völlurinn kemur flott undan vetri. Vorið búið að vera með besta móti og völlurinn mikið sóttur.

Viljum við hvetja okkar félagsmenn að passa að skrá sig í rástíma þar sem margir nýir vinasamningar hafa verið gerðir og má búast við aukinni umferð á völlinn í sumar.

Skálinn er enn rekinn með óhefðbundnum opnunartíma af Soffíu, en er hún við seinnipart á virkum dögun og um helgar. Allt fer síðan í eðlilegt horf í næstu viku.

Mótahaldið er að hefjast næsta miðvikudag 8. maí og er það miðvikudagsmótaröðin sem við verðum með alla miðvikudaga í sumar og eru mótin eins og áður styrkt af KFC og SKALLA.

Verðlaun eru veitt fyrir fyrsta sæti í hverju móti í kvenna og karlaflokki en það verða að vera að minnsta kosti þrjár konur og fimm karlar sem taka þátt. Verða síðan 8 bestu mót hjá hverjum og einum eftir sumarið sem telja í lokin og verða þar þrír efstu með samanlagða punkta sem fá vegleg verðlaun á aðalfundi í haust. Hvetjum alla til að reyna vera með þegar völ er á.

Kveðja Stjórn GHG

 

Leave a Reply