Ágætu golfklúbbsfélagar
Á laugardaginn kemur þann 14. apríl stefnum við á vinnudag í golfklúbbnum þar sem verkefnið verður að koma nýrri þakklæðningu á golfskálann. Þessa dagana leggjum við allt kapp á að undirbúa verkið þannig að það gangi hratt og vel fyrir sig. Veðurspáin er góð og við miðum við að hefjast handa um kl. 9
Öll aðstoð vel þegin – margar hendur vinna létt verk.
Félagskveðja
Húsanefndin